Hellurnar
Annað sniðugt
Dagsetning
12. mars 2010
01.07.2008 14:00:26 / Ásdís Ýr

Ok, þá er þessi síða greinilega bara dauð!

Blessuð sé minning hennar!

Ég bjóst allavega við að einhver myndi segja til hamingju með afmælið Kristín! En það var á laugardaginn og nú er þriðjudagur og enginn búinn að segja neitt (nema ég núna) svo þetta er greinilega ekki að gera sig lengur...

Þá segi ég nú bara samt innilega til hamingju með afmælið um daginn Kristín og innilega til hamingju með afmælið eftir 2 daga Ingunn!  :haha:

Knúsi knús!


» 6 hafa sagt sína skoðun

13.05.2008 09:55:59 / Ásdís Ýr

Verð að blogga smá...

Já, ég á að vera að vinna bumbumyndir núna, en er ekki alveg að nenna því og þá er ekkert sniðugra en að þurfa nauðsynlega að blogga um komandi tíma.

Það er nú reyndar mest lítið að frétta.  Ég er bara heima með litla kútinn minn alla daga. Gef brjóst og skipti á bleium...    Reyni að finna einhvern smá tíma fyrir áhugamálið mitt og er að gera mér atvinnu úr því.  Ég setti inn eina auglýsingu á barnaland um daginn og það gjörsamlega rignir inn skilaboðum frá fólki sem vill koma í myndatöku. Það eru barnamyndatökur, bumbumyndatökur, nektarmyndatökur og fleira.   Verður örugglega soldið að gera hjá mér í sumar...:d

Svo var ég að kaupa mér Rainbow ryksugu!!   Ég er búin að láta mér dreyma um það síðan mamma keypti sér svoleiðis fyrir mörgum árum.  Ætlaði sko að eiga svona þegar ég yrði stór og núna er ég orðin stór!!  :haha:

Svo fer ég til Tenerife eftir 2 vikur!  Get ekki beðið, en kvíði samt alveg viðbjóðslega fyrir fluginu.  5 og hálfur tími í flugvél með Aron Leví og Mikael Darra... og Hjört! það bara getur ekki orðið annað en vesen!  Við erum reynar búin að kaupa ferða-DVD fyrir Aron Leví, en það endist ekki nema í 2 tíma... þá verða teknar fram bækur.  En Mikael Darri... það verður eitthvað grenjað á þeim bænum...:$

Við ætlum að fara í Húsafell í lok júní.  Verðum eina viku í bústað þar.   Svo förum við örugglega til Danmerkur í haust að kíkja á systur hans Hjartar og fjölskyldu.  Mér skilst að ég fari svo líka í verslunarferð til USA í haust þegar ég er hætt með Mikael Darra á brjósti... þá förum við mæðgurnar með systur mömmu og dóttur hennar.  Það verður fjör!
Jú, svo erum við að fara norður í byrjun ágúst því þar verður sveitakeppnin í golfi og Hjörtur fer mjög líklega að keppa þar og við ætlum öll að fara með.

Hvað ætlið þið að gera í sumar Gellur??


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.04.2008 11:25:53 / Ásdís Ýr

Þóran gamla!

Til hamingju með afmælið Þóra!!!

Hafðu það sem allra best en farðu þér nú samt ekki að voða!


Knús frá mér!


» 6 hafa sagt sína skoðun

15.04.2008 12:11:49 / Þóra

Tilkynning !!! :)

Tilkynning !!!

Váví, það er bara brjálað að gera hérna hjá okkur, bullandi traffík !! En gott fólk þannig er nú mál með vexti að þetta er ég, Eydís, Þóran mín var svo elskuleg að lána mér sinn aðgang því að ég get að sjálfsögðu ekki munað minn svo að ef einhver þarna úti getur hjálpað mér að finna notendanafn og lykilorð þá væri það vel þegið :haha:
En allavega, þá ætlaði ég bara að segja ykkur að það er að fjölga í fjölskyldunni hjá mér og það er ekki tíkin sem er hvolpafull ;) ef þið skiljið hvað ég meina, híhí, það er míns.
Þið getið kíkt á krílið á síðunni hans Veigars Þórs og þeir sem það gera VERÐA bara að kvitta, algjör skilda. Lykilorðið á síðunni er nafn systur minnar þið vitið nú allar hvað hún heitir ekki satt?, bara litlir stafir og erl.
En svo ég segi ykkur nú aðeins meira frá þessu þá er ég gengin 13v+5d og settur dagur er 17. október.
En hvað er annars að frétta af ykkur?? er ekki kominn tími á hitting, HA?

Kv, Eydís


» 10 hafa sagt sína skoðun

03.04.2008 13:11:30 / Ásdís Ýr

Jæja...

...það er svona brjálað að gera hérna á þessari síðu okkar...

Hvernig væri nú að fara að hittast eitthvað????

Vorum við ekki að tala um að hafa þetta mánaðarlega????

Þótt það sé brjálað að gera hjá okkur öllum, þá verðum við nú að troða einhverstaðar inn í dagskrána því allra mikilvægasta:  Vinkonunum!

Svo ætla ég að bæta við auglýsingu:

Ljósmyndastúdíó Ásdísar hefur opnað aftur eftir letifrí...
Komin með nýja myndavél og ferskar hugmyndir!

Gott verð og sérstakur vinkvennaafsláttur!

Já, hver vill ekki eiga góðar myndir af sér og sínum nánustu?

Hringið í síma 897-2443 og pantið tíma, strax í dag! :haha:
;" />


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.02.2008 11:31:36 / Þóra

Þóran skrifar

  
Datt í hug að skrifa inn nokkur orð og láta vita af mér.  Við erum semsagt að flytja á Helluna aftur, ekki alveg að fíla menninguna á Selfossi.  Fáum vonandi afhent í byrjun júní.  Sigvaldi minn er alltaf að vinna í Færeyjum kemur heim næst 29. og ég ættla sko ekki að hleypa honum út aftur, komin með alveg nóg af því að vera grasekkja.  Benjamín er alltaf jafn sætur og skemtilegur strákur, skemtilegur tími núna því hann er á fullu að læra að tala það koma ný orð á hverjum degi.  Það þýðir að vísu ekkert að segja við hann "seigðu (eitthvað orð)"  hann segir bara segðu og brosir sætt.  Hann segir bara það sem honum dettur í hug þegar honum dettur í hug.  Ekkert hægt að plata hann til að tala.  Ættla að bjóða öllum í heimsókn þegar ég er flutt líka mökum og þá verður á boðstólnum nýjasta uppáhaldið mitt, frosen strawberry daquiri mmm nammi namm.  Getum grillað saman og gert eitthvað skemtilegt :)

Endilega skrifið nokkur orð það er svo gaman að vita aðeins hvað er að frétta af fólki


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.02.2008 20:41:04 / Ásdís Ýr

Takk fyrir okkur!

Langaði bara að þakka ykkur öllum kærlega fyrir komuna til mín um daginn og gjafirnar, bæði handa mér og litla stubb.

Þið eruð alltaf velkomnar aftur í heimsókn, allar í einu, ein og ein eða með karlana með ykkur (fínt að leyfa þeim að heyra "klingið" í eggjastokkunum...) 


» 3 hafa sagt sína skoðun

02.02.2008 18:27:31 / Ásdís Ýr

Orðin tveggja barna móðir!!

Jæja, nú er ég orðin tveggja barna móðir eins og þið ættuð reyndar allar að vera búnar að heyra...

En ég ætlaði bara að láta vita að ég er samt ekki hætt við afmælið á morgunn... en vara ykkur við því að það gæti alveg verið einhver meiri gestagangur.. kemur bara í ljós, en þið eruð allavega mjög velkomnar í heimsókn!!  

Hlakka bara til að sjá ykkur sem flestar!

Ætla að fara að knúsa litla bangsann minn..  


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.01.2008 19:48:39 / Hildur

Takk fyrir mig!

 

Takk kærlega fyrir allar útskriftarkveðjurnar elskurnar!!

Og takk innilega fyrir gjöfina!

Leiðinlegt að engin af ykkur skyldi hafa komist þannig að ég hlakka til að hitta ykkur hjá Ásdísi.

 

Knús Hildur


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.01.2008 13:32:14 / Ásdís Ýr

Afmælið mitt

Nú ætla ég bara að bjóða formlega í afmælið mitt!

Ég ætla semsagt að halda upp á 24 ára 8| afmælið mitt sunnudaginn 3.febrúar.  Ég ætla að láta það byrja kl 17:00 og hafa einhvern léttan mat svona í fyrra fallinu svo allir komist snemma heim því það er jú vinnudagur daginn eftir hjá flestum ykkar.  

EF það hittist svo illa á að ég verði uppá fæðingardeild, þá frestast þetta bara þangað til helgina eftir, en þið kíkið bara á mig á fæðingardeildina í þangað til.  En ég vona að ég verði bara með litla krílið heima hjá mér þegar þið mætið í afmælið ;) 

Elsku vinkonur mínar! Vona að ég sjái ykkur bara sem flestar!


» 4 hafa sagt sína skoðun

15.01.2008 03:37:32 / Hildur

Útskriftin mín!!

 

Hæ elskurnar,

Ásdís er með aðeins betri fyrirvara á þessu en ég. Ég er með einn hitting sem er aðeins á undan þessum.

Ég er að útskrifast úr viðskiptafræðinni á laugardaginn, 19.janúar!! 

Af því tilefni langar mig að bjóða þér/ykkur að fagna með mér þann dag. 

Staður:  Bæjarhraun 10, Hafnarfjörður.

[2.hæð í sama húsi og Fasteignasalan Hraunhamar, beint á móti KFC] 

Stund: kl. 18 og fram eftir 


Blóm og kransar eru afþakkaðir en ef þig langar að styrkja gott málefni með mér þá verður baukur á staðnum til styrktar unglingum með geðröskun.    


 

Til að peppa upp stemninguna verður “open mic” þannig að ræðuhöld, myndasýningar, skemmtiatriði og sprell er leyfilegt J 

 Hlakka til að sjá þig í þínum hressilegasta gír á laugardaginn  

-Endilega láttu mig vita í síðasta lagi á miðvikudaginn 16.jan ef þú kemst ekki

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

12.01.2008 11:55:13 / Ásdís Ýr

Koma reglu á hittingana okkar!

Einhver nefndi hér að koma einhverri reglu á hittingana okkar, hittast alltaf einusinni í mánuði, fyrsta einhvern vikudag mánaðarins.

Ég var búin að vera að hugsa um fimmtudaginn 7.febrúar, en svo ákvað ég að halda bara smá uppá afmælið mitt þann þriðja sem er á sunnudegi.  Eini "gallinn" er sá að ég er skráð þennan dag þannig að ég veit ekkert hvort ég verð búin að eiga eða alveg að fara að eiga, en það skiptir svosem engu máli, en ef ég skyldi verða uppá fæðingardeild þennan dag, þá bara læt ég ykkur vita og fresta þessu aðeins.. :D

Kristín, þú mátt alveg koma í búning ef þú vilt... og hinar jafnvel líka ef þær vilja..  en svo máttu líka alveg máta bara óléttuföt hjá mér eða e-ð ef þú hefur mikla þörf fyrir að vera að máta og halda tískusýningar :haha:

Allavega, hverjar halda að þær komist til mín sunnudaginn 3.febrúar?  Veit ekki alveg hvenær dagsins ég myndi hafa þetta.. hádegi, kaffi eða kvöldmat?  Hvað segið þið um það?


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.01.2008 13:39:55 / Kristín

Kvöldstund

Takk fyrir notalega stund saman. Bæði gaman og gott að hittast.

Ég væri til í að halda svona mánaðarlega ef það verður alltaf

einhverjir búningar í gangi!:haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun

02.01.2008 15:27:12 / Ingunn Heiða

Hittingur

Jæja stelpur mínar

Ég er að spá í að bjóða ykkur heim á morgun (3. jan) svona í tilefni nýja ársins :)

Ég var að hugsa um að mixa smá kjúklingasalat handa okkur svo við verðum nú ekki svangar og myndum þá hugsanlega tapa einhverjum af þeim klílóum sem við bættum á okkur um jólin.

Við vorum eitthvað búnar að tala um að hittast 3. janúar en það kom aldrei neinn botn í það þannig ég ákvað bara að halda mig við þá dagsetningu og vonast bara til að sjá sem flestar. Þið megið endilega kommenta hvort þið komist eða ekki. Hafði hugsað mér að hafa salatið tilbúið svona uppúr klukkan 7

Hlakka til að sjá ykkur ;) 


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.12.2007 01:20:57 / Hildur

Jólakort og hittingur

 

Hæ elskurnar,

Gleðilega hátíð!!

eins og þið hafið eflaust tekið eftir þá var ég ekki búin að skrifa nein jólakort fyrir þessi jól til að koma í póst þannig að ég var að plana að láta ykkur hafa þau 3.jan þegar við hittumst.

Er sá hittingur ekki enn on??

Og hvar var þá hugmyndin að hittast?

knús!!

-sjitt af hverju erum við ekki á Njálsbúðarballi??? Þýðir þetta að við séum að eldast :S

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10
Klukkan